Breytingar á vægi fitu og próteins í lágmarksverði meðalmjólkur

Á fundi stjórnar SAM í desember 2013 var ákveðið að leita staðfestingar Verðlagsnefndar búvöru á þeirri tillögu SAM að breyta vægi efnaþátta í lágmarksverði meðalmjólkur.

Undangengin ár hefur greiðsla fyrir móttekna mjólk markast af því að 25% af lágmarksverði mjólkur hefur verið reiknað eftir fituinnihaldi, en 75% af lágmarksverði af próteininnihaldi.  Stjórn SAM ákvað að leita eftir staðfestingu þess að ný viðmiðun efnaþátta yrði 50% fyrir fitu og 50% fyrir prótein.

Á fundi Verðlagsnefndar búvöru 8. janúar 2014 var tillaga SAM tekin til afgreiðslu og staðfest af hálfu Verðlagsnefndar.  Þessi nýja viðmiðun tekur því gildi til afurðauppgjörs frá og með 1. janúar 2014.

Nánari upplýsingar eru sendar í dreifibréfi til mjólkurframleiðnda – og bréfið má nálgast HÉR.